Andy Schmid landsliðsþjálfari Sviss og goðsögn í svissneskum handbolta er verður næsti þjálfari HC Kriens-Luzern í svissnesku úrvalsdeildinni frá og með næsta tímabili. Hann verður því bæði þjálfari svissneska landsliðsins og Kriens. Guðmundur Þórður Guðmundsson var einnig orðaður við starfið en nú er ljóst að svissneska goðsögnin tekur við liðinu. „Ég hlakka mjög til að taka að mér hlutverk þjálfara hjá HC Kriens-Luzern samhliða starfi mínu sem landsliðsþjálfari Sviss. Það verður spennandi verkefni að fá frá sumrinu 2026 tækifæri til að taka þátt í þróun liðsins og starfsemi félagsins í heild. Að fá tækifæri til að starfa daglega sem þjálfari á þessu stigi á mínu nánasta heimasvæði lít ég á sem forréttindi,“ sagði Schmid. Schmid, sem tók við sem landsliðsþjálfari Sviss eftir að hafa lagt skóna á hilluna árið 2024, hefur þegar haft umsjón með uppbyggingu liðsins til framtíðar. Hann er einn sigursælasti leikmaður í sögu svissnesks handbolta og hefur meðal annars skorað yfir 1000 mörk fyrir landsliðið á ferlinum. „Að ég geti gert þetta og á sama tíma tryggt fjölskyldu minni stöðugleika í sínu vanalega umhverfi er fyrir mig mikilvægur þáttur í heildarpakkanum. Ég geri mér grein fyrir því að svona tvíþætt hlutverk mun fela í sér krefjandi verkefni. Með gagnsæi, heiðarleika og mínum gildum mun ég leggja mig allan fram um að þessi samsetning verði farsæl fyrir alla sem að henni koma.“ HC Kriens-Luzern er annað besta lið Sviss í dag á eftir Kadetten Schaffhausen en liðið hefur tryggt sér sterka leikmenn fyrir næstu leiktíð og ætla sér stóra hluti í nánustu framtíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.