Serbneski markvörðurinn, Dejan Milosavljev leikmaður Þýskalandsmeistarana í Fuchse Berlín er engum líkur en hann afrekaði það að verja fimm vítaskot frá Magdeburg í einum og sama leiknum um helgina en það dugði þó ekki til því Magdeburg fór með sigur úr bítum í leiknum. Á 17 mínútna kafla í fyrri hálfleik varði Milosavljev fimm vítaskot frá Magdeburg og þar af tvö frá landsliðsfyrirliðanum, Ómari Inga Magnússyni. Ótrúleg frammistaða og það er ekki oft sem maður sér þetta gerast í handboltaleik nú til dags. Vítaskotin fimm sem Dejan Milosavljev varði í leiknum er hægt að sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.