Færeyski handknattleiksmaðurinn Vilhelm Poulsen hefur framlengt samning sinn við þýska liðið TSV Hannover-Burgdorf til ársins 2027. Vilhelm Poulsen lék með Fram í Olís-deild karla í tvö tímabil á árunum 2020-2022 áður en hann fór til Danmerkur. Hann gekk í raðir Hannover-Burgdorf frá Lemvig sumarið 2024 og er að klára sitt annað tímabil hjá félaginu. Hinn 26 ára vinstri handar skytta mun því halda áfram að spila í hægri skyttustöðunni, þar sem hann myndar par með þýska landsliðsmanninum Renars Uscins. Sigvaldi Björn Guðjónsson verður liðsfélagi Vilhelms á næstu leiktíð en hann gengur til liðs við félagið frá Kolstad í sumar. Þjálfarinn Juan Carlos Pastor sagði að Poulsen væri mikilvægur fyrir liðið, sérstaklega í vörninni, en hann telur líka að Poulsen geti lagt meira af mörkum í sóknarleiknum í framtíðinni. Vilhelm hefur spilað yfir 40 landsleiki fyrir færeyska landsliðið. Liðið er um miðja deild og lítur félagið á framlenginguna sem mikilvægt skref fyrir áframhaldandi uppbyggingu liðsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.