Rúnar Kárason leikmaður Fram er hefur leikið sinn síðasta leik á ferlinum. Þetta tilkynnti Rúnar á Instagram síðu sinni. Rúnar lék síðasta leik sinn á ferlinum í tapi gegn FH í gær á heimavelli er liðið féll úr leik 2-0 í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins. Rúnar varð Íslands- og bikarmeistari með Fram á síðustu leiktíð. Rúnar verður 38 ára síðar á þessu ári en hann er uppalinn hjá Fram. ,,Ætli þetta sé ekki tekið á einum af mínum fyrstu mótum í handbolta ca. 1996. 4 árum síðar var ég orðinn staðráðinn í að komast í landsliðið og atvinnumennsku. Það tókst. Ferillinn var allskonar, stórkostlegur og hörmung. 30 ár af handboltaiðkun, 21 tímabil í meistaraflokki. Takk til þeirra sem voru samferða, takk fyrir stuðninginn, takk fyrir mig," skrifar Rúnar við færslu sína. Rúnar hóf ferilinn með Fram en fór 21 árs gamall í atvinnumennsku til Fuchse Berlín í Þýskalandi. Hann lék einnig með Bergischer, Grosswallstadt, Rhein-Neckar Löwen og Hannover Burgdorf á tíu árum þar í landi, frá 2009 til 2018. Þaðan fór hann til Ribe-Esbjerg í Danmörku áður en hann sneri heim og gekk í raðir ÍBV. Hann varð Íslandsmeistari með ÍBV tímabilið 2022/2023 og fór í kjölfarið til Fram þar sem hann lék þrjú tímabil.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.