Stymmi Spáir í leiki dagsins

Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi.

Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins

Úrslitakeppni - Olís kvenna

KA/Þór - Haukar (Miðvikudagur 18:00) / Sigurvegari: Haukar (Staðan í einvíginu 0-1)

KA/Þór gerði vel í síðasta leik gegn Haukum en náði ekki að halda það út í síðari hálfleik. Haukar voru án Jóhönnu Margrétar en það kom ekki að sök en það er mikilvægt fyrir þær að hafa hana með í kvöld á erfiðum útivelli. Ég held Haukar klári einvígið í kvöld og sendi KA/Þór í sumarfrí en þær geta þó borið höfuðið hátt eftir gott gengi á tímabilinu.

Fram - ÍR (Miðvikudagur 19:30) / Sigurvegari: ÍR (Staðan í einvíginu 1-0)

Fram vann frábæran sigur á ÍR í síðasta leik. En þið þekkið mig, ég er rómantíkus og held alltaf með oddaleiknum og ég held áfram að spá því. Ég held ÍR bíti í skjaldarrendur og vinni Fram í kvöld í miklum baráttuleik þar sem lítið verður skorað og markmennirnir verði í aðalhlutverkum í báðum liðum.

Umspil - Olís karla

Hörður - Grótta (Miðvikudagur 19:00) / Sigurvegari: Grótta (Staðan í einvíginu 1-0)

Hörður voru frábærir á sunnudaginn á Nesinu þar sem þeir skelltu í lás í síðari hálfleik og keyrðu yfir Gróttuna á þeirra heimavelli. Liðin mættust fyrir vestan í vetur og þá fór jafntefli og Grótta veit að það er ekkert grín að fara vestur og vinna. Þeir munu þó fara með sigur af hólmi í kvöld og svei mér þá ef það verði ekki eftir framlengdan leik.

Umspil - Olís kvenna

Víkingur - Grótta (Miðvikudagur 18:30) / Sigurvegari: Grótta (Staðan í einvíginu 0-1)

Það sást á sunnudaginn að munurinn á þessum liðum er einfaldlega of mikill þegar Grótta vann Víkinga með 13 mörkum. Sigurinn verður ekki alveg eins stór í kvöld en Grótta mun klára þetta einvígi 2-0 og fara í úrslitaleik um sæti í Olís deild kvenna.

FH - Stjarnan (Miðvikudagur 19:30) / Sigurvegari: Stjarnan (Staðan í einvíginu 0-1)

Stjarnan var miklu sterkari aðilinn í leik þessara liða á sunnudaginn. FH vann þær þó á heimavelli í bikarkeppninni í vetur og hugsa sér eflaust gott til glóðarinnar að geta strítt Stjörnustelpum. Stjarnan eru eflaust minnugar tapinu fyrr í vetur og munu klára þennan leik með 3-4 mörkum og tryggja sig í úrslitaleik gegn Gróttu um sigur í umspilinu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top