
Arnór Atlason og lærisveinar hans í TTH Holstebro luku deildarkeppninni í Danmörku í 4.sæti með jafn mörg stig og Skjern og Mors en stóðu betur að vígi í innbyrðisstöðu liðanna. Holstebro byrjar því úrslitakeppnina með eitt stig í fjögurra liða riðli þar sem Skanderborg er með tvö stig. Auk Skanderborg er Holstebro í riðli með Bjerringbro/Silkeborg og Mors sem hefja úrslitakeppnina með 0 stig. Leikin verður tvöföld umferð og tvö efstu liðin vinna sér þátttökurétt í undanúrslitum um danska meistaratitilinn. „Við erum ánægð og stolt af okkar frammistöðu í deildarkeppninni. Auðvitað eru nokkur stig hér og þar sem við hefðum gjarnan viljað fá. Þegar allt kemur til alls getum við ekki kvartað yfir því að enda í fjórða sæti," sagði Arnór Atlason í viðtali við samfélagsmiðlasíðu félagsins og bendir á að hann gerir ráð fyrir erfiðri baráttu í riðlakeppninni um laust sæti í undanúrslitum. TTH Holstebro byrjar úrslitakeppnina á útivelli á mánudagskvöld gegn Mors-Thy Håndbold klukkan 18:00. Arnór Atlason hefur verið til umræðu síðustu daga en hann er sagður vera einn af þeim sem Nikolaj Jacobsen vill fá í þjálfarateymi sitt hjá danska landsliðinu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.