
Danska þjálfaratvíeykið hjá franska stórliðinu Paris Saint-Germain er undir mikilli pressu eftir afar vonbrigðasamt gengi liðsins í Meistaradeild Evrópu í handbolta. Ekki minnkaði pressan eftir átta marka tap liðsins gegn Veszprém í fyrri leik liðanna í 1.umferð útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar í vikunni. Slök frammistaða liðsins náði hámarki í leiknum en liðin mætast í seinni leiknum í París í næstu viku. Stefan Madsen tók við liðinu síðasta sumar en Henrik Møllgaard er honum til aðstoðar. Danski handboltasérfræðingurinn Bent Nygaard lét málið ekki liggja á milli hluta og lýsti stöðunni sem „gríðarlegum vonbrigðum“, þar sem liðið hafi einfaldlega ekki staðið undir væntingum í Meistaradeildinni í vetur. Þrátt fyrir að PSG hafi staðið sig vel í frönsku deildinni er það árangurinn í Evrópu sem skiptir mestu máli hjá félaginu, og þar hefur liðið brugðist. Af þeim sökum hefur pressan aukist verulega á þjálfarateymið. Samkvæmt erlendum miðlum eru jafnframt farnar að ganga sögusagnir um að spænski þjálfarinn Roberto Parrondo þjálfari MT Melsungen gæti tekið við liðinu. Ekki er útilokað að breytingar verði gerðar fyrr en síðar ef árangurinn batnar ekki á næstunni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.