Úrslitakeppnin í Danmörku hófst í gær þegar tveir leikir fóru fram í sitthvorum riðlinum. Landsliðsmaðurinn Kristján Örn Kristjánsson, jafnan kallaður Donni, og liðsfélagar hans í Skanderborg AGF byrjuðu úrslitakeppnina af krafti. Þeir sóttu sigur á útivelli gegn Bjerringbro/Silkeborg 41-36. Skanderborg hóf úrslitakeppnina með tvö stig og eru því komnir með fjögur stig í riðlinum. Bjerringbro/Silkeborg er hinsvegar áfram án stiga. Gestirnir náðu góðu forskoti snemma leiks og voru sex mörkum yfir í hálfleik 20-14. Þeir héldu yfirhöndinni út leikinn og tryggðu sér öruggan sigur. Donni lagði sitt af mörkum með tveimur mörkum og tveimur stoðsendingum. Emil Lærke var markahæstur í liði Skanderborg með átta mörk en hjá heimamönnum átti Mads Svane Knudsen stórleik og skoraði 14 mörk úr 26 skotum. Í hinum leik dagsins komu úrslitin á óvart þegar ríkjandi meistarar Álaborg töpuðu gegn Fredericia, 41-36. Tap Álaborgar vakti athygli þar sem liðið hafði verið afar sterkt á tímabilinu, meðal annars tapað aðeins einum leik í deildarkeppninni en það var í lokaumferðinni. Þá er liðið ríkjandi bikarmeistari í Danmörku og hefur gengið vel í Meistaradeild Evrópu en liðið hefur tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Mads Kjeldgaard var markahæstur í liði Fredericia með tíu mörk. Thomas Arnoldsen var markahæstur í liði Álaborgar með ellefu mörk og Juri Knorr skoraði tíu mörk. Næsti leikmaður Álaborgar skoraði einungis þrjú mörk. Þetta setur riðilinn í uppnám því Fredericia sem rétt slefaði inn í úrslitakeppnina er nú með jafn mörg stig og Álaborg. Skjern og GOG mætast í dag og á morgun lýkur 1.umferðinni þegar Mors tekur á móti Arnóri Atlasyni og félögum í TTH Holstebro.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.