FH tóki á móti Haukum í fyrsta leik liðanna í undanúrslita einvígi þeirra um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta. Leiknum hafði verið beðið með mikilli eftirvæntingu enda ekki á hverjum degi sem við fáum þessa erkióvini úr Hafnarfirðinum að mætast í úrslitakeppninni. FH byrjaði leikinn betur og komust snemma í 2-0 en varnarleikur Hauka var samt frábær. Haukarnir unnu sig fljótlega inní leikinn og voru búnir að jafna leikinn eftir um 10 mínútna leik. Áfram héldu Haukar að spila frábæra vörn og eftir um 16 mínútna leik tóku FH leikhlé þar sem Haukar voru komnir með fjögurra marka forskot, 4-8. Það er óhætt að segja að leikhléið hafi skilað tilætluðum árangari því FH skoraði snögg 4 mörk í röð eftir leikhléið og jöfnuðu leikinn í 8-8. Mikið jafnræði var með liðunum þar sem eftir var hálfleiks og var staðan 11-12 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Spennustigið í upphafi síðari hálfleiks var hátt og liðin gerðu mistök á báða bóga. Jafnt var á öllum tölum fram eftir síðari hálfleik. Jón Þórarinn. Markvörður FH, varði oft á tíðum á mikilvægum augnablikum í síðari hálfleik þegar Haukar höfðu tækifæri á að komast tveim mörkum yfir og hélt FH inni þessu. Þegar um 10 mínútur voru eftir kom Garðar Ingi Sindrason FH tveim mörkum yfir í 19-17 en fékk í kjölfarið tveggja mínútna brottvísun fyrir að hindra Haukana við að taka hraða miðju. Það kom þó ekki að sök þar sem Jón Þórarinn hélt uppteknum hætti í marki FH-inga og varði hvert skotið á fætur öðru. Haukar reyndu hvað þeir gátu að minnka forskotið en FH hélt bara áfram að bæta í og unnu að lokum sex marka sigur, 27-21. Lokatölurnar gefa þó ekki endilega rétta mynd af leiknum þar sem hann var hnífjafn og spennandi í 55 mínútur en FH gengu á lagið undir restina. Jón Þórarinn var frábær í marki FH í kvöld með 12 varin skot, rétt undir 50% markvörslu. Markahæstur í liði FH í kvöld var Ómar Darri Sigurgeirsson með 8 mörk en hjá Haukum var Freyr Aronsson markahæstur með 7 mörk. FH er því komið í 1-0 í einvíginu en næsti leikur liðanna er á Ásvöllum á föstudagskvöldið klukkan 19.00. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 30% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.