

Fyrsti leikur í undanúrslitum úrslitakeppni olís deildar karla átti sér stað í kvöld. Deildarmeistararnir Valur fengu KA í heimsókn í N1 höllinni. Bæði lið sópuðu andstæðingum sínum í 8-liða úrslitum þar sem Valur vann HK og KA vann ÍBV. Veðurstofa var búin að gefa út veðurviðvaranir um allt land í dag og áttu KA menn eftir að gera sér ferð suður í höfuðborgina í morgun. Þeir létu ekki veðrið stoppa sig, lögðu eldsnemma af stað og komust á leiðarenda eftir um 40 mínútna stopp á Kjalarnesi vegna vegalokunar. Mögulega var einhver ferðaþreyta að hrjá KA mönnum en þeir sáu aldrei til sólar í leiknum. Valur náði snemma tökum á leiknum, þeir juku jafnt og þétt forystu sína í fyrri hálfleik og skiluðu 8 mörk milli liðanna í hálfleik, hálfleikstölur 17-9. Ef KA menn höfðu einhverja von á endurkomu í hálfleik þá var sú von fljót að deyja. Eftir 2 mínútur voru Valur komnir með 10 marka forystu og héldu yfirburðirnir áfram til leiksloka. Leikurinn endaði með 18 marka sigri Vals, lokatölur 39-21. Björgvin Páll Gústavsson lokaði marki Vals með 54,8% markvörslu eða 17 varða bolta. Bjarni I Selvindi var með 8 stoðsendingar og 3 mörk. Gunnar Róbertsson var markahæstur með 8 mörk. Valsmenn eru því komnir með forystu í einvíginu en KA hefur tækifæri á að jafna vígið fimmtudaginn næsta þegar þeir bjóða Val í heimsókn fyrir norðan. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 30% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.