Sagður á leið frá Magdeburg til Mors-Thy
Ruben De La Rosa / NurPhoto via AFP

Sagt er frá því á samfélagsmiðlasíðunni, Handballtransfer að norski landsliðsmaðurinn, Sebastian Barthold leikmaður Magdeburg sé á leið í dönsku úrvalsdeildina og sé á leið til Mors-Thy.

Sebastian Barthold gekk í raðir Magdeburgar síðasta sumar vegna meiðsla í herbúðum félagsins en hann hafði leikið með Álaborg frá 2017. Nú er hann hinsvegar orðaður við Mors-Thy en á Handballtransfer er talað um að ef félagaskiptin ganga í gegn yrðu þetta stærstu félagaskipti í sögu félagsins.

Handkastið vill nú meina að félagaskipti Agnars Smára Jónssonar til Mors-Thy á sínum tíma sé nú ekkert síðri.

Barthold sem er fæddur árið 1991 verður 35 ára síðar á þessu ári en hann er uppalinn hjá Haslum. Hann lék með Haslum í Noregi á árunum 2010-2017 áður en hann gekk í raðir Álaborgar.

Mors-Thy endaði í 6.sæti dönsku úrvalsdeildarinnar á þessari leiktíð. Magnus Norlyk vinstri hornamaður liðsins gengur í raðir Álaborgar í sumar og er Barthold sagður eiga fylla hans skarð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top