

Ívar Logi Styrmisson hefur framlengt samningi sínum við Fram til næstu tveggja ára. Þetta tilkynnti Fram í morgun. Í tilkynningu Fram segir að Ívar sé mikill baráttujaxl og að hann hafi vaxið í leiðtogahlutverki undanfarin misseri. Hann hefur sterka rödd í klefanum, leiðir liðið ekki bara í orði, heldur á borði. Það er alltaf hægt að reikna með 100% framlagi og ákefð frá Ívari. Frammarar segjast gríðarlega ánægð með að halda Ívari lengur og óska honum sem og öllum Frömmurum til hamingju með samninginn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.