Fram heldur handboltamót í sumar á gervigrasi
Kristinn Steinn Traustason

Handknattleiksdeild Fram hafa sett af stað skráningu á handboltamót sem fram fer 6.júní næstkomandi í Úlfarsárdal og kallast: Framtille.

Framtille er nýtt og spennandi handboltamót á vegum Fram. Mótið er sérstaklega hugsað sem öflugur og skemmtilegur undirbúningur fyrir þau lið sem stefna á þátttöku í Partille Cup síðar í sumar en að sjálfsögðu er öllum frjálst að taka þátt.

Partille Cup er eitt stærsta handboltamót fyrir unglinga í heiminum sem haldið er árlega í upphafi júlí mánaðar í Gautaborg í Svíþjóð. Árlega fara fjölmörg íslensk lið á mótið.

Spilað utandyra á gervigrasi
Leikið verður utandyra á gervigrasi, sem skapar einstaka stemningu og líkir eftir aðstæðum sem mörg
lið upplifa á stórum alþjóðlegum mótum. Að spila úti krefst annars konar aðlögunar og er frábær æfing
fyrir lið sem vilja mæta vel undirbúin til leiks erlendis.

Keppnisstemning og liðsheild
Framtille leggur áherslu á góða keppnisstemningu og vandaða framkvæmd. Mótið býður upp á:
- Góðan leikjahraða og marga leiki
- Skemmtilega og jákvæða mótstemningu
- Sterka liðsheild og dýrmæta keppnisreynslu
- Undirbúning bæði innan vallar og utan

Aldursflokkar
Mótið er hugsað fyrir leikmenn sem eru í 5. Og 4. Flokki karla og kvenna. Gert er ráð fyrir að spilað verði í deildum U16 kk/kvk og U14 kk/kvk. Framtille áskilur sér rétt til að fjölga eða fækka aldursflokkum eftir að skráningu er lokið.

Liðagjald og mótsgjöld
Liðagjald fyrir hvert lið (ekki félag) er 10.000 krónur.
Liðagjald greiðist um leið og lið eru skráð til leiks og skráning telst ekki gild fyrr en greiðsla hefur
borist.
- Skráning hefst 20. febrúar,
- Hægt að skrá sig í gegnu form hér að neðan eða með pósti á runarkara@fram.is
- Taka þarf fram upplýsingar um fjölda liða og aldursflokk liðs ásamt nafni félags.
- Liðagjald fæst ekki endurgreitt
- Liðagjald dregst ekki frá mótsgjöldum

Mótsgjald er 2.500 krónur á hvern leikmann.
Mótsgjald verður innheimt að móti loknu.

Mótið er frábært tækifæri fyrir leikmenn og þjálfara til að slípa leikskipulagið, efla samvinnu og byggja upp sjálfstraust fyrir sumarið.

Við hlökkum til að taka á móti liðum í Úlfarsárdal 6. júní – sjáumst á Framtille! 

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top