Líkt og kom fram í dag þá hefur Atli Steinn Arnarson, 22 ára Hafnfirðingur, og fyrrum leikmaður Gróttu samið við ÍBV. Atli Steinn er uppalinn í Haukum en færði sig síðan yfir í FH. Var hann einnig um tíma á láni hjá HK áður en hann fór til Gróttu sumarið 2024. Atli Steinn er rétthent skytta sem skoraði 57 mörk í 11 leikjum með Gróttu í vetur í Grill 66 deildinni. Við heyrðum aðeins í Atla Steini í dag eftir að þetta var tilkynnt að hann væri á leiðinni til Eyja og fengum hans viðbrögð við félagaskiptunum. "Ég er virkilega ánægður að ganga til liðs við ÍBV. Þetta er mjög spennandi tækifæri fyrir mig að flytja á Eyjuna fögru og fá að spila með ÍBV. Það verður frábært að byrja að æfa hjá Erlingi og fá að kynnast liðinu, umhverfinu og fólkinu í Eyjum. Ég er mjög spenntur fyrir því að spila fyrir ÍBV og leggja mitt af mörkum fyrir félagið" sagði Atli Steinn Arnarson.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.