Norðurlöndin: Ringsted með flottan sigur í fallumspilinu
Ruben De La Rosa / NurPhoto via AFP

Það voru þrjú Íslendingalið í eldlínunni í Danmörku og Noregi í kvöld en fallumspilið í Danmörku er farið af stað rétt eins og topp 8 umspilið en Ringsted spilaði sinn fyrsta leik í kvöld á útivelli gegn HØJ Elite.

Fór leikurinn að lokum svo að Ringsted unnu frábæran útisigur, 30-33 þar sem Ísak Gústafsson skoraði tvö mörk úr fjórum skotum og gaf eina stoðsendingu á meðan Guðmundur Bragi Ástþórsson klikkaði á eina skotinu sínu en gaf tvær stoðsendingar fyrir gestina sem eru núna með þrjú stig eftir einn leik en þeir tóku eitt stig með sér inn í umspilið. Heimamenn eru í neðsta sætinu með núll stig en þeir tóku ekkert stig með sér og eru í vondum málum eins og staðan er í dag.

Í Noregi unnu Kolstad góðan útisigur á Runar, 31-35 en Benedikt Gunnar Óskarsson átti frábæran leik fyrir gestina, hann nýtti öll fjögur skotin sín og gaf átta stoðsendingar að auki, Sigvaldi Björn Guðjónsson átti einnig flottan leik en hann skoraði sjö mörk úr níu skotum og Sigurjón Guðmundsson kom með fína innkomu í markið en hann varði fjögur af þeim ellefu skotum sem hann fékk á sig eða 36% markvarsla.

Að lokum unnu Drammen góðan heimasigur á Bækkelaget, 28-24 en Ísak Steinsson var ekki í leikmannahópi liðsins að þessu sinni.

Úrslit kvöldsins:

HØJ Elite 30-33 Ringsted

Runar 31-35 Kolstad

Drammen 28-24 Bækkelaget

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top