
Franska stórliðið Nantes heldur áfram að skrifa sögu sína í Meistaradeild Evrópu og hefur fest sig í sessi sem eitt stóru félögunum í evrópskum handbolta. Liðið sló út danska félagið GOG í fyrstu umferð útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar á miðvikudaginn með sannfærandi 12 marka sigri 40-28. Samanlagt vann Nantes viðureignina 74-61. Árangur franska félagsins, Nantes er hinsvegar afar góður þegar kemur að sögu liðsins í Meistaradeildinni en félagið hefur aðeins tapað þremur af ellefu heimaleikjum sínum í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar frá upphafi. Enn fremur hefur liðið einungis verið slegið út í þremur af ellefu viðureignum. Árangur Nantes í Evrópu á undanförnum árum hefur verið eftirtektarvert. Árið 2018 fór liðið alla leið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar og endaði í öðru sæti. Árið 2021 tryggði það sér fjórða sætið og í fyrra komst liðið í þriðja sinn í Final 4 en árið 2025 komst Nantes enn á ný í Final 4. Nú bíður næsta stóra próf. Framundan er risaviðureign gegn Barcelona – liði sem hefur lengi verið meðal þeirra sterkustu í Evrópu. Spurningin er hvort Nantes haldi áfram að sýna sína einstöku seiglu og bæti enn einum kafla við glæsilega Evrópusögu sína og tryggir sér þar með sæti í Final 4 í Köln annað árið í röð. Í fyrra vann Nantes fimm marka sigur á Barca í leik um 3.sætið á Final 4 eftir tíu marka tap gegn Fuchse Berlín í undanúrslitunum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.