Fyrrum leikmaður ÍBV klárar tímabilið á Spáni
Puente Genil

Örvhenta skyttan, Daniel Vieira sem lék tvö tímabil með ÍBV í Olís-deild karla hefur samið við spænska úrvalsdeildarliðið Puente Genil sem er í 14.sæti deildarinnar á Spáni þegar sjö umferðir eru eftir.

ER liðið með 13 stig jafn mörg stig og Huesca sem er í 15. sætinu en Quabit Guadalajara er í neðsta sæti deildarinnar með 10 stig. Tvö lið falla beint niður um deild en þriðja neðsta liðið, 15.sætið fer í umspil.

Vieira yfirgaf ÍBV síðasta sumar og gekk í raðir franska B-deildarliðsins Saran en hefur nú fengið vistaskipti yfir til Spánar og er ætlað að hjálpa Puente Genil í þeirri fallbaráttu sem liðið er í.

,,Mér líður vel með þessa ákvörðun ég er spenntur og tilbúinn fyrir nýjan kafla á mínum ferli. Ég vona að þetta verði reynsla sem hjálpi mér að vaxa bæði sem leikmaður og manneskja í menningu sem er ólík minni en þó svipuð fyrri reynslu minni. Ég er ánægður að vera hér og vona að ég geti hjálpað liðinu eins vel og mögulegt er," sagði Portúgalinn á heimasíðu spænska félagsins.

Á síðustu leiktíð skoraði Daniel tæplega fimm mörk að meðaltali í leik fyrir ÍBV en á sínu fyrsta tímabili skoraði hann tæplega fjögur mörk að meðaltali í leik.

Spánverjarnir eru greinilega ekkert að stressa sig á félagaskiptaglugganum en á Íslandi lokaði félagaskiptaglugginn 1.febrúar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top