Ísland átti tvö lið í Evrópudeildinni á þessu tímabili. Stjarnan féll úr leik í forkeppni Evrópudeildarinnar eftir tap gegn rúmenska liðinu Baia Mare í vítakastkeppni og þá lék Fram í riðlakeppni Evrópudeildarinnar en tapaði öllum leikjum sínum í keppninni. Fyrsta umferð útsláttarkeppninnar fór fram í vikunni þar sem Melsungen, Nexe, Montpellier og Flensburg komust öll áfram. Melsungen hafði betur gegn danska liðinu Fredericia, Nexe sló út Íslendingaliðið, Kristianstad. Tryggvi Þórisson og liðsfélagar hans í Elverum féllu úr leik gegn Montpellier og þá vann Flensburg danska liðið Skanderborg. Átta liða úrslitin í Evrópudeildinni hefjast þriðjudaginn 28. apríl. Tvö Íslendingalið eru eftir í keppninni en þau mætast í átta liða úrslitunum þegar Melsungen og Porto mætast og því ljóst að einungis eitt Íslendingalið leikur í Final 4 helginni í Evrópudeildinni á þessu tímabili. Með Melsungen leika Arnar Freyr Arnarsson og Reynir Þór Stefánsson og með Porto leikur Þorsteinn Leó Gunnarsson. Hér má sjá viðureignirnar í átta liða úrslitunum. Melsungen - Porto Nexe - Kiel Montpellier - Vardar Flensburg - Hannover-Burgdorf

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.