Norðurlöndin: Kristianstad komnir í 2-0
Raggi Óla

Úrslitakeppnin í Svíþjóð er áfram í fullum gangi og í kvöld fóru fram tveir leikir en Íslendingaliðin Kristianstad og Karlskrona mættust öðru sinni og í þetta sinn í Karlskrona þar sem heimamenn freistuðu þess að jafna metin í einvíginu.

Rétt eins og í fyrsta leiknum var leikurinn jafn og spennandi en því miður endurtóku gestirnir leikinn frá því í fyrsta leiknum og unnu að lokum með þremur mörkum, 28-31 og eru því deildarmeistararnir frá Kristianstad komnir 2-0 yfir. Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði tvö mörk úr fjórum skotum og gaf eina stoðsendingu á meðan Arnór Viðarsson skoraði einnig tvö mörk en þurfti sex tilraunir til og gaf tvær stoðsendingar að auki.

Kristianstad geta gert út um einvígið með sigri á heimavelli sínum næstkomandi mánudagskvöld.

Hinn leikur kvöldsins var á milli Ystad og Malmö en Ystad áttu möguleika að komast í 2-0 með sigri á heimavelli sínum en þeir unnu fyrsta leikinn nokkuð óvænt. Malmö voru hinsvegar grimmari frá upphafi til enda og ætluðu ekki að lenda með bakið upp við vegg og þeir unnu gríðarlega öruggan sigur, 28-38.

Úrslit kvöldsins:

Karlskrona 28-31 Kristianstad

Ystad 28-38 Malmö

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top