
Ársþing Handknattleikssamband Íslands (HSÍ) árið 2026 verður haldið föstudaginn 8. maí í veislusalnum í Virkinu við Safamýri í Reykjavík. Skráning þingfulltrúa hefst klukkan 15:00 og þingið sjálft verður sett klukkan 16:00 sama dag. Nánari upplýsingar um kjörbréf og fjölda fulltrúa verða sendar út síðar með formlegri boðun. Framboð til stjórnar HSÍ þarf að berast skrifstofu sambandsins að minnsta kosti 21 degi fyrir þingið, þó uppstillingarnefnd geti tekið við framboðum sem berast síðar. Ef aðildarfélög eða sambandsaðilar vilja fá ákveðin mál tekin fyrir á þinginu þurfa þau einnig að skila þeim inn með minnst 21 dags fyrirvara. Stjórn HSÍ sendir síðan dagskrá og innsend mál til félaganna eigi síðar en viku fyrir þing. Einungis þingfulltrúar hafa atkvæðisrétt á þinginu, og það á aðeins við um fulltrúa félaga og aðila sem eru ekki í vanskilum við sambandið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.