

Sögusagnir eru nú á kreiki um leikmannamál hjá þýska handboltaliðinu TSV Hannover-Burgdorf en landsliðsmaðurinn, Sigvaldi Björn Guðjónsson gengur í raðir félagsins frá Kolstad í sumar. Samkvæmt þýska miðlinum Sport Bild er svissneska vinstri skyttan Lenny Rubin orðaður við félagið en hann hefur einnig verið orðaður við Rhein-Neckar Löwen. Nýjustu upplýsingar benda þó til þess að þrátt fyrir að Löwen sé að leita að vinstri skyttu, sé Rubin ekki sá leikmaður sem þeir hyggjast sækja. Í staðinn beinast spjótin nú að Hannover-Burgdorf, sem samkvæmt Sport Bild íhugar að fá Rubin til liðs við sig. Samningur hans við TVB Stuttgart rennur út 30. júní. Athyglin beinist því nú helst að Hannover-Burgdorf í tengslum við hinn 30 ára gamla Svisslending. Auk Lenny Rubin er sagt að Hannover-Burgdorf hafi einnig augastað á Sebastian Heymann frá Rhein-Neckar Löwen og Philipp Ahouansou frá HSG Wetzlar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.