Hafði heyrt það frá mörgum aðilum að Stefán yrði rekinn
Egill Bjarni Friðjónsson

Stefáni Árnasyni þjálfara karlaliðs Aftureldingar á síðustu leiktíð var sagt upp störfum í vikunni og er Afturelding því í þjálfaraleit fyrir komandi tímabil. Stefán hafði starfað hjá félaginu í fjögur ár, fyrstu þrjú árin sem aðstoðarþjálfari Gunnars Magnússonar en hann var að klára sitt fyrsta tímabil sem aðalþjálfari liðsins.

Auk þess hefur Stefán þjálfað yngri flokka félagsins og var yfirþjálfari Aftureldingar á þessu tímabili. Rætt var uppsögn Stefáns og líklega eftirmenn hans í nýjasta þætti Handkastsins.

,,Hitamál dagsins í boði Everdure Grill er að sjálfsögðu málið sem Handkastið skúbbaði. Það hefur verið mikið að gera á skrifstofunni þar sem Stefáni Árnasyni var sagt upp störfum sem þjálfari Aftureldingar í vikunni. Handkastið birti þá frétt fyrsta allra fjölmiðla í heiminum, staðarblaðið í Kiel var ekki einu sinni með þetta á undan okkur. Ég ætla að hrósa þér Stymmi, þú ert búinn að halda þessu fram í fleiri fleiri vikur að þetta yrði niðurstaðan," sagði Arnar Daði Arnarsson, þáttastjórnandi Handkastsins meðal annars þegar umræðan um uppsögnina hófst.

,,Ég og mín fjölskylda höfum mátt þola bágt fyrir," bætti Stymmi við áður en Arnar Daði hélt áfram:

,,Ég verð að viðurkenna það að ég veit að Stefán Árnason hefur gert frábæra hluti í Mosfellsbænum í yngri flokkum og kom sterkur inn sem aðstoðarþjálfari Gunna Magg í meistaraflokknum. Ég hélt að hann væri í miklum metum í Mosfellsbænum. Hann var að klára sitt fyrsta tímabil sem aðalþjálfari með mikið breytt lið. Það var enginn sem gerði ráð fyrir einum eða neinum árangri á þessu tímabili og ég held að velgengni liðsins í upphafi tímabilsins hafi ekki hjálpað honum í þessu öllu saman.”

,,Ég held að það sé ágætt að ég komi því áleiðis að þó svo að ég sé búinn að halda þessu fram þá hefur það ekki verið mín skoðun að það hafi átt að reka hann. Ég var bara búinn að heyra þetta frá mörgum aðilum að hann yrði ekki áfram með liðið. Ég bjóst alveg eins við þessu daginn eftir tapið gegn Haukum en stjórnin vildi greinilega ekki gera þetta á föstudaginn langa. En þetta kom mér á óvart, mér fannst yngri leikmenn liðsins vera að bæta sig og það er eitthvað sem mér finnst hafa verið vöntun á hjá öðrum liðum á Íslandi," sagði Stymmi en frekari umræða um málið er hægt að hlusta á í þættinum sjálfum en umræðan hefst í upphafi þáttar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top