Tjörvi Týr og félagar grátlega nálægt fyrsta sigrinum
Oppenweiler

Tjörvi Týr Gíslason og liðsfélagar hans í Oppenweiler/Backnang voru grátlega nálægt fyrsta sigrinum í þýsku B-deildinni en Oppenweiler/Backnang sem eru nýliðar í deildinni sitja á botni deildarinnar með tvö stig.

Liðið fékk Dessauer í heimsókn og tapaði með tveimur mörkum 33-35 eftir að Dessauer hafi leitt í hálfleik 15-16. Tjörvi Týr Gíslason skoraði eitt mark í leiknum úr einu skoti. Tjörvi og félagar voru yfir í stöðunni 23-22 þegar 18 mínútur voru eftir af leiknum en gestirnir reyndust sterkari aðilinn undir lok leiks.

Elmar Erlingsson og liðsfélagar hans í Nordhorn-Lingen tóku á móti Lübbecke en liðin voru í 6. og 8.sæti fyrir umferðina. Heimamenn voru sterkari í kvöld en þeir unnu nauman sigur, 34-32 en Elmar skoraði eitt mark úr fjórum skotum en gaf fjórar stoðsendingar.

Úrslit dagsins:

Oppenweiler/Backnang 33-35 Dessauer

Nordhorn-Lingen 34-32 Lübbecke

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top