Jóhanna Lind hefur framlengt við HK fyrir komandi tímabil í Olís-deildinni Í tilkynningu frá HK segir að Handknattleiksdeild HK hafi samið við Jóhönnu Lind Jónasdóttur um að framlengja samning sinn við félagið til næstu tveggja ára. Jóhanna Lind er uppalin í HK og hefur leikið með meistaraflokki HK frá árinu 2021 og vaxið jafnt og þétt með liðinu. Hún er öflugur leikmaður sem leysir stöðu hægra hornamanns. Framlenging Jóhönnu staðfestir þá stefnu félagsins að byggja á sínum uppöldu leikmönnum og halda áfram að þróa liðið fyrir komandi tímabil í Olísdeildinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.