
Fimm strákar í nýsköpunaráfanga í Framhaldsskóla Vestmannaeyja, FÍV hafa síðustu daga og vikur unnið hörðum höndum að skemmtilegu verkefni sem tengist Olís-deild karla. Þeir ákváðu að hanna handboltaspjöld af leikmönnum úr Olís-deild karla og en hægt er að panta spjöldin í gegnum Instagram síðu verkefnsins. Í samtali við Handkastið sögðu strákarnir sem eru á bakvið verkefnið að sökum tímaleysis þá hafi þeir ákveðið að byrja á að gera spjöld fyrir Olís-deild karla en það væri vilji þeirra að gera einnig spjöld fyrir Olís-deild kvenna í komandi framtíð ef áhugi og eftirspurn væri til staðar. Þeir segja að einkunnagjafir á spjöldunum eru gefnar út frá deildarkeppni tímabilið 2025-2026 frá Hbstatz. Þá tóku þeir það einnig fram að sjö efstu leikmennirnir í einkunnargjöf HB Statz úr hverju liði hefðu fengið spjöld. ,,Spjöldin verða seld í pökkum og eru sjö leikmenn í hverjum pakka og það er alltaf einn markmaður í hverjum pakka. Pakkinn kostar 690 kr. Við verðum í bænum á vöru messu í Smáralindinni þann 18. apríl þar sem fólk getur komið og keypt pakka síðan er líka hægt að hafa samband við okkur á samfélagsmiðlun til að kaupa pakka. Fyrstu pakkar verða tilbúnir í þessari viku," sögðu strákarnir meðal annars í samtali við Handkastið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.