Færeyskur línumaður í KA/Þór

KA/Þór hefur borist góður liðsstyrkur fyrir næsta tímabil en hin færeyska Agatha Kjærbek Djurhuus skrifaði í dag undir tveggja ára samning við félagið.

Agatha sem er 19 ára gömul er afar efnilegur línumaður sem hefur þrátt fyrir ungan aldur verið í lykilhlutverki í meistaraflokksliði VB frá árinu 2022. Hún kemur frá Vági og hefur alla sína tíð verið hjá staðarliðinu VB, Vágs Bóltfelag. Hún hefur verið fastamaður í yngrilandsliðum Færeyja og hefur auk þess verið að banka fast á dyr hins öfluga A-landsliðs sem vann meðal annars 35-30 sigur á liði Íslands á dögunum.

"Það verður virkilega spennandi að fylgjast með henni í svarta búningnum næsta vetur og bjóðum við hana hjartanlega velkomna í KA/Þór" segir í tilkynningu KA/Þór í dag.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top