Vantar fjármuni upp á en hefur enga trú á öðru en það leysist
Baldur Þorgilsson

Bjartsýni ríkir um framgang nýrrar þjóðarhallar fyrir innanhússíþróttir hér á landi, en verkefnið hefur verið til umræðu um árabil. Unnið er að undirbúningi og liggja fyrir tillögur að framkvæmdinni, sem er ætlað að bæta verulega aðstöðu fyrir íslenskt íþróttafólk og stærri viðburði. 

Heimsmeistaramót karla árið 2031 fer fram í þremur löndum, Íslandi, Danmörku og Noregi, en hér á landi verða leiknir tveir riðlar auk eins milliriðils. Ein af lykilforsendum þess að Ísland geti tekið þátt í mótshaldinu er að ný þjóðarhöll fyrir innanhússíþróttir rísi í Laugardal.

Jón Halldórsson, formaður HSÍ, segir mikla tilhlökkun vera innan sambandsins vegna verkefnisins, en hann ræddi málið í samtali við mbl.is.

,,Þetta er gríðarlega spennandi og skemmtilegt að fá að halda tvo riðla hérlendis árið 2031. Þetta er í raun bara rétt handan við hornið og okkar augu eru núna á því að þjóðarhöllin verði tilbúin. Þetta verður gríðarleg lyftistöng fyrir íþróttalíf á Íslandi að fá heimsmeistaramótið í handbolta hingað til lands,“ sagði Jón.

Síðast fór heimsmeistaramót karla fram á Íslandi árið 1995 og þá urðu ekki af áform um byggingu nýrrar þjóðarhallar. Að þessu sinni telur Jón hins vegar enga ástæðu til svartsýni.

„Ég er alltaf bjartsýnn. Nú er búið að opna pakkann og það vantar einhverja fjármuni þarna upp á, en ég hef enga trú á öðru en að það verði leyst,“ sagði hann í samtali við mbl.is.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top