Eitt af spútnik liðum þýsku Bundesligunnar hafa ekki átt sjö dagana sæla að undanförnu en liðið hefur ekki unnið leik í síðustu fimm leikjum liðsins í deildinni. Lemgo hefur aðeins fengið eitt stig af 10 mögulegum í síðustu leikjum. Þá hefur liðið orðið fyrir skakkaföllum því ljóst er að Jan Mudrow leikur ekki meira með liðinu á tímabilinu en hann meiddist á hné í leik gegn Füchse Berlin á dögunum. Er Mudrow á leið í aðgerð og er gert ráð fyrir að hann snúi aftur á undirbúningstímabilinu fyrir næstu leiktíð. Mudrow meiddist á vinstra hné í leiknum gegn þýsku meisturunum og eftir nánari skoðun kom í ljós að hann er með áverka á ytri liðþófa. Þá verður einnig unnið að því í aðgerð að laga krossband sem hann sleit í ágúst síðastliðnum. Hinn 19 ára, Jan Mudrow hefur skorað 20 mörk fyrir Lemgo á tímabilinu en hann hefur verið hluti af yngri landsliðum Þýskalands.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.