
Færeyingurinn, Sveinur Ólafsson yfirgefur Aftureldingu í sumar eftir tveggja ára dvöl hjá félaginu. Þetta staðfesti hann í samtali við Handkastið. Sveinur sem er 23 ára, rétthent skytta gekk í raðir Aftureldingar sumarið 2024 eftir að hafa orðið færeyskur meistari með H71. Þar var hann meðal markahæstu manna deildarinnar, í úrvalsliði ársins ásamt því að vera besti leikmaður tímabilsins. Sveinur fékk hinsvegar aldrei nein almennileg tækifæri undir stjórn Gunnars Magnússonar á sínu fyrsta tímabili en tækifærin voru töluvert meiri undir stjórn Stefáns Árnasonar á þessari leiktíð. Sveinur varð hinsvegar fyrir því óláni að meiðast á miðju tímabili. Sveinur sagði í samtali við Handkastið að hann væri nú á leið til Danmerkur þar sem hann ætlaði að sameina nám og handboltaiðkun. Sveinur skoraði 24 mörk í 21 leik fyrir Aftureldingu í vetur en liðið féll úr leik í úrslitakeppni Íslandsmótsins eftir oddaleik gegn Haukum í 8-liða úrslitunum. Afturelding eru í þjálfaraleit eftir að félagið lét Stefán Árnason þjálfara liðsins fara eftir tímabilið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.