Ísland verður í A-riðli á Evrópumóti kvenna sem fer fram í desember á þessu ári. Fer riðilinn fram í Oradea í Rúmeníu. Ísland verður þar í riðli með Ungverjalandi, Svartfjallalandi og Slóveníu. Dregið var í Katowice í Póllandi nú rétt í þessu en Ísland var í fjórða og þar af leiðandi, neðsta styrkleikaflokki fyrir dráttinn. Ungverjaland endaði í 3.sæti á síðasta Evrópumóti eftir sigur á Frökkum, 25-24 í leik um bronsið. Ísland verður einnig í riðli með Svartfjallalandi en liðin voru saman í forkeppni Evrópumótsins þar sem Ísland vann frækinn sigur gegn Svartfjallalandi hér á landi í síðasta mánuði. Að lokum mætir liði Slóveníu sem var í þriðja styrkleikaflokki en um er að ræða fjórða stórmótið sem stelpurnar okkar leika á, í röð. Riðlarnir á EM 2026 er eftirfarandi: A-riðill : Ungverjaland, Svartfjallaland, Slóvenía, Ísland - Fer fram í Oradea í Rúmeníu B-riðill : Noregur, Rúmenía, Sviss, Norður-Makedónía - Fer fram í Cluj-Napoca í Rúmeníu C-riðill : Danmörk, Spánn, Tyrkland, Grikkland - Fer fram í Antalya í Tyrklandi D-riðill : Holland, Tékkland, Austurríki, Króatía - Fer fram í Brno í Tékklandi E-riðill : Frakkland, Pólland, Færeyjar, Úkraína - Fer fram í Katowice í Póllandi F-riðill : Svíþjóð, Þýskaland, Slóvakía, Serbía - Fer fram í Bratislava í Slóvakíu

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.