IFK Kristianstad mætti HF Karlskrona fjórða leik liðanna í 8-liða úrslitum í sænsku deildinni í gær. Fyrir leikinn voru Kristianstad í góðri stöðu eftir að hafa unnið tvo leiki og staðan í einvíginu var 2-1 en vinna þarf þrjá leiki til þess að komast áfram. Einar Bragi Aðalsteinsson var allt í öllu í leik Kristianstad en hann skoraði 10 mörk í 35-41 sigri í gær sem þýðir að liðið er nú komið í undanúrslitin. Einar Bragi varð fyrr í mánuðinum bikarmeistari með liðinu og er nú kominn í undanúrslitin í deildarkeppninni þar sem liðið mætir Alingsas HK. Hér má sjá öll 10 mörkin hjá Einari Braga í gær:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.