
Hafdís Renötudóttir átti frábæran leik í marki Vals í öðrum leik liðsins gegn Fram í undanúrslitum Íslandsmótsins sem fram fór á sólríkum degi í Úlfarársdalnum. Íslands- og bikarmeistarar Vals eru komnar 2-0 yfir á móti Fram í einvíginu eftir sannfærandi sigur í dag 27-18 en Valur leiddi í hálfleik með sex mörkum 14-8. Ásdís Þóra Ágústsdóttir var markahæst hjá Val með fimm mörk en þær Lovísa Thompson og Elísa Elíasdóttir skoruðu fjögur mörk hvor. Guðrún Hekla Traustadóttir skoraði þrjú mörk. Hjá Fram var Hulda Dagsdóttir markahæst með fimm mörk og þær Ásdís Guðmundsdóttir og Dagmar Guðrún Pálsdóttir voru með þrjú mörk hvor. Í stöðunni 4-4 skoraði Valur sex mörk í röð og breytti stöðunni í 4-10 og liðið náði mest sjö marka forystu í fyrri hálfleik. Eftir það var aldrei spurning hvar sigurinn myndi enda í leiknum í dag og Fram því komið með bakið upp við vegg eftir frábæran fyrsta leik þar sem liðið var yfir nánast allan leikinn en frábær endasprettur Vals skilaði þeim sigri í þeim leik. Liðin mætast í þriðja sinn á miðvikudaginn þar sem Valur getur tryggt sér sæti í úrslitaeinvíginu. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 30% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.