
Stórveldin í Ungverjalandi, Veszprém og Pick Szeged mættust í dag í undanúrslitum bikarsins þar í landi en úr varð magnaður leikur sem heimamenn unnu á endanum í vítakastkeppni, 33-32. Íslendingarnir í báðum liðum, Bjarki Már Elísson í Veszprém og Janus Daði Smárason í Szeged voru að sjálfsögðu með í dag eins og svo oft áður. Bjarki Már átti frábæran leik fyrir heimamenn en hann skoraði tíu mörk úr tólf skotum þar af sex úr vítum á meðan Janus Daði skoraði þrjú mörk úr sex skotum en hann endaði á því að vera skúrkurinn ef svo má segja því hann klikkaði á seinasta vítinu fyrir Szeged sem markmaður Veszprém, Mikael Appelgren varði frábærlega. Úrslitaleikurinn fer fram á morgun en þá mæta Veszprém annað hvort Tatabánya eða Moly Neka sem eigast við þessa stundina en fastlega má búast við sigri Veszprém.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.