
Þjálfarateymi Gróttu, Davíð Örn Hlöðversson og Lárus Gunnarsson hættu á dögunum með liðið eftir að liðið tapaði gegn Herði í undanúrslitum umspilsins um laust sæti í Olís-deild karla. Grótta endaði með jafn mörg stig og Víkingur í 1. - 2. sæti Grill66-deildarinnar en Víkingur stóð betur að vígi í innbyrðisviðureignum liðanna. Grótta er því í þjálfaraleit annað árið í röð en Róbert Gunnarsson hætti með liðið eftir síðustu leiktíð en liðið féll úr Olís-deildinni á síðustu leiktíð. Davíð Örn sem tók við liðinu, var aðstoðarþjálfari Róberts í þrjú ár. Handkastið ákvað að búa til fimm manna lista af sem gætu verið mögulegir kandídatar að taka við liðinu. Það skal þó tekið fram að þetta er einungis til gamans gert og eingöngu laufléttar bollaleggingar. Sebastian Alexandersson Arnar Daði Arnarsson Þjálfaði Gróttu á árunum 2019-2022 með góðum árangri. Var aðstoðarþjálfari karla liðs Stjörnunnar þangað til hann var rekinn fyrir áramót. Hefur verið í þjálfarateymi kvennaliðs Stjörnunnar á þessu tímabili eftir að Patrekur Jóhannesson var rekinn. Verður samningslaus Stjörnunni eftir tímabilið. Maksim Akbachev Var aðstoðarþjálfari Arnars Daða með Gróttu á árunum 2020-2022 og var auk þess yfirþjálfari yngri flokka hjá félaginu til ársins 2023. Þjálfaði yngri flokka hjá félaginu en hefur einnig verið aðstoðarþjálfari hjá Haukum. Er aðstoðarþjálfari U20 ára landsliðs karla og það er ansi líklegt að Maksim sé ofarlega á blaði hjá stjórnarmönnum Gróttu. Stefán Árnason Var á dögunum sagt upp störfum sem þjálfari Aftureldingar. Hefur gert góða hluti í þjálfun undanfarin ár bæði í yngri flokkum og sem meistaraflokksþjálfari. Kom inn með krafti í þjálfarateymi Aftureldingar með Gunnari Magnússyni. Hefur einnig þjálfað meistaraflokk KA og Selfoss. Er ofarlega á blaði hjá Gróttu samkvæmt heimildum Handkastsins. Daníel Berg Grétarsson Var aðstoðarþjálfari Stefáns Árnasonar hjá Aftureldingu á þessu tímabili auk þess sem hann stýrði Hvíta riddaranum, venslaliði Aftureldingar í Grill66-deildinni. Daníel er með litla reynslu í meistaraflokksþjálfun en þetta gæti verið frábært skref fyrir hann. Gæti reynst Gróttu vel á mörgum sviðum.
Reynslu mikill þjálfari sem hefur komið víða víð á ferlinum. Hætti sem þjálfari kvennaliðs Víkings á dögunum eftir tvö ár í starfi. Þar áður þjálfaði hann karlalið HK og Fram en hann hefur víða komið að uppbyggingu meistaraflokksliðs. Sebastian, Basti hefur verið lengi í þjálfun bæði í meistaraflokksþjálfun og yngri flokka þjálfun. Það gæti verið áhugavert að sjá Basta taka við liði Gróttu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.