Norðurlöndin: Skanderborg með sigur í Íslendingaslag
Kristinn Steinn Traustason

Nokkrir leikir fóru fram í dag í Danmörku og Noregi en það var meðal annars boðið upp á Íslendingaslag í topp átta umspilinu á meðan Drammen vann fyrsta leik liðsins í úrslitakeppninni í Noregi.

Drammen vann sex marka sigur á Runar á heimavelli í dag, 34-28 en Ísak Steinsson kom lítið við sögu í markinu og fékk aðeins að koma inn á í tvö víti en hann varði hvorugt þeirra.

Í Danmörku fengu Ribe-Esbjerg skell á útivelli þegar HØJ Elite léku á alls oddi á heimavelli sínum en lokatölur urðu 39-25 fyrir heimamenn. Þrátt fyrir tapið átti Elvar Ásgeirsson fínan leik fyrir gestina en hann skoraði fimm mörk úr átta skotum, gaf tvær stoðsendingar og fékk að auki eina brottvísun. Þrátt fyrir sigur liðsins þá er samt sem áður orðið staðfest að HØJ mun fara í úrslitaleiki við Kolding eða Aarhus um að halda sér í deildinni.

Hitt Íslendingaliðið í fall umspilinu, Ringsted mátti einnig þola tap í dag en þeir töpuðu nokkuð örugglega á heimavelli fyrir Sønderjyske, 22-31. Guðmundur Bragi Ástþórsson og Ísak Gústafsson voru ekki í leikmannahópi liðsins, rétt eins og í seinasta leik.

Að lokum fór fram Íslendingaslagur í topp átta umspilinu en þar unnu Skanderborg frábæran útisigur á TTH Holstebro, 30-37. Kristján Örn Kristjánsson, Donni skoraði fimm mörk úr tíu skotum, gaf tvær stoðsendingar og fékk eina brottvísun á meðan Jóhannes Berg Andrason skoraði eitt mark úr tveimur skotum fyrir heimamenn.

Skanderborg eru í góðum málum hvað varðar undanúrslit deildarinnar en þeir sitja á toppi síns riðils með sjö stig, fjórum stigum á undan Holstebro sem sitja í þriðja sætinu en efstu tvö liðin fara í undanúrslitin.

Úrslit dagsins:

Drammen 34-28 Runar

HØJ Elite 39-25 Ribe-Esbjerg

Ringsted 22-31 Sønderjyske

TTH Holstebro 30-37 Skanderborg

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top