Gunnar Hrafn úr Gróttu í Víking

Gunnar Hrafn Pálsson, 24 ára skytta og leikstjórnandi, hefur gengið í raðir Víkings úr Gróttu.

Víkingar unnu sér sæti í Olís deildinni fyrir næsta tímabil en liðið var í harðri baráttu við Gróttu um sæti í deild þeirra bestu.

Í tilkynningu frá Víkingum segir að Gunnar sé fjölhæfur og tæknilega sterkur leikmaður sem getur bæði leyst skyttustöðuna og stýrt leik liðsins. Hann kemur til Víkings frá Gróttu þar sem hann hefur áður leikið í Olís deildinni og aflað sér dýrmætrar reynslu á hæsta stigi íslensks handbolta.

Þá segir ennfremur að Víkingr séu með þessu að undirbúa sig af krafti fyrir veruna í Olís deildinni og sé þetta liður í þeirri vegferð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top