
Einn leikur fór fram í Svíþjóð í kvöld en í Stokkhólmi fór fram oddaleikur Hammarby og Sävehof. Flestir reiknuðu með sigri Hammarby en sigurliðið mætir Malmö í undanúrslitunum. Heimaliðið fór betur af stað og náði fljótt forystunni en gestirnir náðu að vinna það niður og leiddu með einu marki í hálfleik, 20-21. Gestirnir héldu áfram í seinni hálfleiknum og heimamenn áttu erfitt með að halda í við gestina, Sävehof komst fimm mörkum yfir þegar um korter var eftir og reyndist það bil of mikið fyrir Hammarby. Fór svo að lokum að gestirnir unnu frábæran sigur, 33-38 og er því komið áfram í undanúrslitin. Birgir Steinn Jónsson skoraði fimm mörk úr fimm skotum og fékk eina brottvísun að auki en liðið mætir Malmö í undanúrslitunum sem hefjast á föstudagskvöldið næstkomandi. Í hinu einvíginu mætast deildarmeistarar Kristianstad og Alingsås en það einvígi hefst á fimmtudagskvöldið. Úrslit kvöldsins: Hammarby 33-38 Sävehof

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.