Aron Rafn dæmdur í eins leiks bann
Sævar Jónasson

Aron Rafn Eðvarðsson markvörður Hauka mun hefja næsta tímabil í leikbanni og missir þar af leiðandi af leik Hauka í Meistarakeppni HSÍ þegar bikarmeistarar Hauka mæta Íslandsmeisturunum í upphafsleik tímabilsins.

Það skýrist á næstu dögum hvort það verður FH eða Valur.

Aron Rafn Eðvarðsson markvörður Hauka var úrskurðaður í eins leiks bann á fundi aganefndar HSÍ í gær. Aron sýndi grófa ódrengilega hegðun eftir tap Hauka gegn FH í undanúrslitaeinvíginu á föstudagskvöldið en FH vann leikinn með einu marki 36-35 og sló Hauka út, 3-1.

„Aganefnd barst skrifleg skýrsla dómara vegna grófrar ódrengilegrar hegðunar Arons Rafns Eðvarðssonar, leikmanns Hauka, að loknum leik Hauka og FH í úrslitakeppni Olís deildar karla þann 17.04.2026. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:10 a). Með tilvísun í 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að starfsmaðurinn sé úrskurðaður í eins leiks bann,“ segir í úrskurði aganefndar HSÍ.

Hvort Aron Rafn leiki hinsvegar með Haukum á næstu leiktíð verður að koma í ljós en Aron Rafn lagði handboltaskóna á hilluna fyrir ári síðan en tók skóna fram rétt fyrir tímabilið sökum meiðsla Vilius Rasimas þáverandi markmanns Hauka.

Úrslitaeinvígi Vals og FH hefst á föstudagskvöldið klukkan 19:30 í Valsheimilinu en Valur eru ríkjandi deildarmeistarar en FH endaði í 2.sæti deildarinnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top