
Portúgalska handknattleikssambandið hefur ákveðið að framlengja samning sinn við landsliðsþjálfarann Paulo Jorge Pereira, sem heldur því áfram við stjórnvölinn hjá karlalandsliði þjóðarinnar næstu ár. Pereira, sem tók við liðinu árið 2016, hefur náð eftirtektarverðum árangri með portúgalska landsliðið og leitt það upp á nýtt stig á alþjóðavettvangi. Undir hans stjórn hefur liðið meðal annars náð sínum besta árangri á stórmótum. Portúgal endaði í 5.sæti á Evrópumótinu í janúar eftir sigur á Svíþjóð í leiknum um 5.sætið og þá fór liðið alla leið í undanúrslit á Heimsmeistaramótinu í fyrra þar sem liðið endaði í 4.sæti á mótinu. Fyrri samningur hans náði til ársins 2025, en með nýrri framlengingu er tryggt að hann heldur áfram með liðið til ársins 2028.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.