Katar ræður nýjan þjálfara
Anne-Christine POUJOULAT / AFP

Handknattleiksþjálfarinn Veselin Vujović mun stýra karla landsliði Katar á heimsmeistaramótinu 2027. Hann tekur við liðinu af Spánverjanum, Valero Rivera sem hafði stýrt liðinu í eitt ár.

Þetta þýðir að Vujovic snýr aftur til starfa hjá katarska landsliðið eftir að hafa stýrt liðinu á HM 2025. Þar hafnaði Katar í 21. sæti og fékk hann að taka pokann sinn í kjölfarið.

Undir stjórn Valero Rivera lenti Katar í 2. sæti á Asíumeistaramótinu eftir tap gegn Barein í úrslitaleiknum en Katar hafði unnið mótið sex sinnum í röð fyrir tapið gegn Barein.

Vujović er mjög reynslumikill þjálfari og hefur áður stýrt nokkrum landsliðum á heimsmeistaramótum, þar á meðal Júgóslavíu, Serbíu og Svartfjallaland, Slóveníu og Íran. 

Markmið Katar er að bæta árangur sinn á alþjóðavettvangi, þar sem liðið hefur ekki náð sama árangri og þegar það varð í 2. sæti á HM 2015.  Heimsmeistaramótið 2027 verður haldið í Þýskalandi og er stefnt að því að halda áfram uppbyggingu liðsins fram að því móti segir í tilkynningunni frá katarska sambandinu.

Hér að neðan má sjá ótrúlegan þjálfaraferil Veselin:

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top