Tvö Íslendingalið voru í eldlínunni í dag, í Danmörku og Noregi en í Noregi tryggðu Drammen sig áfram í undanúrslitin í úrslitakeppninni eftir sigur í oddaleik á Runar. Lokatölur í Drammen urðu 34-25 en Drammen voru með fulla stjórn á leiknum frá upphafi til enda. Ísak Steinsson kom ekkert við sögu í leiknum að þessu sinni. Þeir eru því komnir í undanúrslit ásamt Elverum, Kolstad og Bergen. Í Danmörku spilaði Ribe-Esbjerg lokaleik sinn í fall umspilinu þegar þeir tóku á móti Nordsjælland á heimavelli. Ribe-Esbjerg átti í litlum vandræðum með gestina en þeir unnu stóran sigur, 37-26 og enduðu því efstir í fall umspilinu en þeir unnu þrjá leiki af fjórum í riðlinum. Elvar Ásgeirsson átti fínan leik fyrir heimamenn en hann skoraði þó færri mörk en venjulega. Hann skoraði fjögur mörk úr sex skotum og bætti við fjórum stoðsendingum. Úrslit dagsins: Drammen 34-25 Runar Ribe-Esbjerg 37-26 Nordsjælland

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.