Enn einn leikmaðurinn yfirgefur Pick Szeged í sumar
Julien Kammerer / DPPI via AFP

Ungverski landsliðamaðurinn Ricárd Bodó mun yfirgefa ungverska liðið Pick Szeged eftir tíu ára veru hjá félaginu. Ákvörðunin kemur í kjölfar breyttra áherslna hjá þjálfarateyminu og skerts spilatíma á nýliðnu tímabili.

Bodó greinir frá því að þjálfarinn hafi viljað fá inn annan leikmann í hans stöðu, sem hafi haft áhrif á traust og hlutverk hans innan liðsins. Hann segir jafnframt að sér hafi verið gefinn kostur á að leita annarra tækifæra.

„Ég hef verið í mismunandi hlutverkum á þessu tímabili og ákvað að ég vildi ekki sitja í stúkunni næsta ár. Þetta var ekki auðveld ákvörðun og tók tíma að klára,“ segir Bodó, sem leggur áherslu á að skilnaðurinn fari fram í góðu.

Hann telur að staðan hafi hvorki verið hagstæð fyrir félagið né hann sjálfan ef hann fengi ekki nægjanlegan spilatíma og því hafi verið rétt að halda áfram á nýjar slóðir.

Bodó, sem er 33 ára, hefur verið lykilmaður hjá Szeged um árabil. Fram undan hjá Bodó er að finna sér nýtt félag en hann hefur allan sinn feril leikið í heimalandinu með Dunaferr og Tatabánya áður en hann gekk í raðir Pick Szeged sumarið 2016.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top