Norski landsliðsmaðurinn Petter Øverby gæti verið á leið frá þýska stórliðinu THW Kiel í sumar, samkvæmt erlendum miðlum. Petter Øverby sem hefur leikið með Kiel síðan 2022, virðist vera á förum eftir tímabilið þar sem samkeppni á línunni hjá félaginu hefur aukist verulega. Þýskir miðlar hafa greint frá því að Øverby vilji halda áfram að spila í Bundesligunni, en ljóst er að hann verður ekki áfram hjá Kiel. Í kjölfarið hafa nokkur félög verið nefnd til sögunnar, þar á meðal HSG Wetzlar. Þjálfari HSG Wetzlar er Rúnar Sigtryggsson en Arnar Freyr Arnarsson var einnig orðaður við Wetzlar fyrr á þessu ári en nú bendir allt til þess að Arnar Freyr gangi í raðir Flensburg. Samkvæmt óstaðfestum heimildum er Wetzlar meðal þeirra liða sem hafa sýnt Øverby áhuga. Félagið hefur átt í erfiðleikum á tímabilinu og gæti verið að leita að reynslumiklum línumanni til að styrkja liðið fyrir næsta tímabil. HSG Wetzlar er hinsvegar í mikilli fallbaráttu um þessar mundir og ekki enn ljóst í hvaða deild liðið leikur með. Norðmaðurinn hefur sagt frá því að hann vilji halda áfram að spila í bestu deild í heimi. Øverby, sem er 34 ára gamall verður eftirsóttur á markaðnum ef hann verður laus allra mála í sumar. Næstu vikur gætu skorið úr um framtíð hans, en eins og staðan er nú virðist Wetzlar vera raunhæfur möguleiki fari svo að liðið haldi sæti sínu í deildinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.