Rúnar hafði betur í fallbaráttu slagnum
Emily Diehl)


Þrír leikir voru á dagskrá í dag er 29.umferð þýsku úrvalsdeildarinnar gekk í garð.

Fyrsti leikur dagsins fór fram þegar lærisveinar Rúnars Sigtryggs í Wetzlar buðu lærisveinum Arnórs Þórs í Bergischer í heimsókn í sannkölluðum botnslag. Leikurinn byrjaði af miklum krafti þar sem allt var í járnum, í hálfleik var staðan 15-15. Í seinni hálfleik sigu Wetzlar menn framúr þar sem þeir voru á tímapunkti komnir átta mörkum yfir. Leikurinn endaði 33-29 fyrir Wetzlar. Atkvæðamesti leikmaður leiksins var Josip Simic með 9 mörk úr 9 skotum.

Seinni leikur dagsins var er Hannover bauð Lemgo í heimsókn. Leikurinn varð strax frá byrjun járn járn og var staðan í hálfleik 14-15. Seinni hálfleikur einkenndist eins þar sem mikið jafnræði var. Lokatölur voru 30-30. Atkvæðamesti leikmaður vallarins var Tim Suton með 7 mörk. 

Þriðji og síðasti leikur dagsins var í Porche Arena þegar Stuttgart tók á moti Íslendingaliði Magdeburg. Leikurinn byrjaði af miklum krafti þar hálfleikstölur voru 14-14. Í seinni hálfleik náðu Magdeburg frumkvæðinu en Stuttgart var aldrei langt frá. Lokatölur 26-30. Gísli Þorgeir skoraði 5 mörk, Ómar Ingi skoraði 1 mark en Elvar komst ekki á blað.

Úrslit dagsins:

Wetzlar-Eisenach 33-29

Hannover-Lemgo 30-30

Stuttgart-Magdeburg 26-30

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top