Að hver leikur eigi sitt líf á vel við um þetta einvígi
Sævar Jónasson)

Stjarnan og Grótta mætast í oddaleik í úrslitaeinvígi umspilsins um laust sæti í Olís-deild kvenna í kvöld. Leikið verður í Heklu-höllinni í Garðabæ og hefjast leikar klukkan 19:30.

Einvígið hingað til hefur verið ótrúlegt. Grótta hefur unnið báða sína leiki á útivelli og sama með Stjörnuna sem hafa unnið báða sína leiki á útivelli einnig.

Miklar sveiflur hafa verið í leikjunum og erfitt að rýna í því hvað við eigum von á í sjálfum oddaleiknum.

Við heyrðum í Evu Björk Davíðsdóttur fyrirliða Stjörnunnar og fengum hana til að segja okkur aðeins frá einvíginu hingað til og oddaleiknum sem framundan er.

,,Ég held að gamla klisjan um að hver leikur eigi sitt líf eigi vel við um þetta einvígi. Það hefur verið hart barist og ég á ekki von á neinu öðru í kvöld. Núna er bara að núllstilla sig aftur og nýta þennan stutta tíma fram að leik vel. Það er geggjað að fá svona leik á heimavelli, við skuldum okkar fólki frammistöðu þar og munum skilja allt eftir á gólfinu. Ég hvet alla Garðbæinga til að mæta og taka þátt í þessari veislu með okkur," sagði Eva Björk Davíðsdóttir fyrirliði Stjörnunnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top