Stendur ramma vaktina áfram hjá Nantes
MARIUS BECKER / AFP

Króatíski markvörðurinn, Ivan Pesic hefur framlengt samningi sínum við franska stórliðið Nantes um eitt ár eða til sumarsins 2027.

Ivan Pesic varð 37 ára í síðasta mánuði hefur leikið með Nantes síðustu fjögur tímabil.

Eftir langa dvöl hjá Meshkov Brest í Hvíta Rússlandi á árunum 2013-2022 lék hann eitt tímabil með Stuttgart í þýsku Bundesligunni áður en hann gekk í raðir Nantes sumarið 2022.

Hann lék með Króatíu á HM 2025 en það var hans síðasta verkefni með króatíska landsliðinu en þar vann liðið til silfurverðlauna undir stjórn Dags Sigurðssonar. Hann lék tæplega 50 landsleiki fyrir Króatíu á ferlinum.

Hann varð franskur bikarmeistari með Nantes á sínu fyrsta tímabili og þá hefur liðið farið í Final 4 í Meistaradeildinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top