Stjarnan með valinn mann í hverju rúmi
Eyjólfur Garðarsson

Það ræðst í Heklu-höllinni í kvöld hvort Stjarnan eða Grótta leika í Olís-deild kvenna á næstu leiktíð en staðan er jöfn 2-2 í einvíginu. Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19:30 og verður sýndur í Handboltapassanum.

Við heyrðum í Júlíusi Þóri Stefánssyni þjálfara Gróttu fyrir leikinn mikilvæga í kvöld en Grótta endaði í 2.sæti Grill66-deildarinnar á tímabilinu og var hársbreidd frá því að vinna deildina en tap gegn FH undir lok tímabilsins reyndist liðinu dýrt.

Ljóst er að það verður leikið til þrautar í kvöld. Miðað við fyrri leiki liðanna að þá verður mjög erfitt að rýna í þennan leik og hvað við fáum frá liðunum.

"Leikurinn leggst mjög vel í okkur. Þetta einvígi er búið að vera virkilega krefjandi og skemmtilegt á milli tveggja góðra liða. Við þurfum að ná upp góðri frammistöðu til að eiga möguleika á móti virkilega sterku og reyndu Stjörnuliði sem er með valinn mann í hverju rúmi. Í lokinn vill ég hvetja alla Seltirninga og Gróttufólk til að gera sér ferð í Garðabæinn og styðja við bakið á stelpunum í síðasta leik tímabilsins" sagði Júlíus Þórir Stefánsson þjálfari Gróttu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top