Aron Örn Heimisson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Gróttu en hann mun einnig sinna þjálfun 3.flokks karla hjá félaginu. Hann verður Andra Sigfússyni til halds og trausts. Aron kemur til Gróttu frá Fram. Hann spilaði upp alla yngri flokkana með félaginu og hóf þjálfun hjá Fram árið 2017. Hefur hann frá þeim tíma þjálfað yngri flokka félagsins, bæði karla og kvenna, frá 6. flokki upp í 3. flokk. Síðustu tvö ár hefur hann stýrt 3. flokki kvenna og U-liði félagsins og var á síðasta tímabili einnig aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna. "Við bjóðum Aron Örn Heimisson velkominn í Gróttu" segir í tilkynningu frá félaginu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.