Meistaradeildin: Barca og Veszprém með sigra
JOHAN NILSSON /AFP

Tveir leikir fóru fram í Meistaradeildinni í kvöld. Um er að ræða fyrri viðureignirnar í 8-liða úrslitum.

Veszprém - Fuchse Berlin 35-34 (17-20)
Draumur Bjarka Más Elíssonar um að spila í úrslitahelginni í Köln lifir enn eftir eins marks sigur á Fuchse Berlin 35-34. Bjarki komst ekki á blað í leiknum en Ivan Martinovic og Hugo Descat voru markahæstir fyrir Veszprém með 8 mörk hvor. Mathias Gidsel var sem oft áður markahæstur hjá Berlínarrefunum með 13 mörk.

HBC Nantes - Barca 30-32 (18-19)
Viktor Gísli Hallgrímsson varði 6 skot og var með 27% hlutfallsmarkvörslu í tveggja marka sigri á Nantes í kvöld. Aleix Gómez var markahæstur hjá Barca með 9 mörk. Kauldi Odriozola var markahæstur hjá Nantes með 6 mörk.

Bæði þessi einvígi eru þó galopin fyrir síðari viðureigninar og verður spennandi að sjá hvaða lið bóka sæti í úrslitahelginni í júní.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top