Sjáðu lygileg endurkomu – Skoruðu fjögur mörk á 95 sekúndum
Raggi Óla

Það voru ótrúlegar senur í úrslitakeppninni í Svíþjóð á miðvikudagskvöldið þegar Alingsås mætti Einari Braga Aðalsteinssyni og félögum í Kristianstad í öðrum leik liðanna í undanúrslitum um sænska meistaratitilinn.

Kristianstad tapaði í annað sinn eftir framlengingu gegn Alingsås, en í þetta sinn urðu lokatölurnar 37-35 fyrir Alingsås. Staðan er því orðin 2-0 fyrir Alingsås sem verða teljast óvænt tíðindi en Kristianstad eru deildarmeistarar á meðan Alingsås endaði í fimmta sæti deildarinnar.

Einar Bragi Aðalsteinsson sem var á dögunum valinn í íslenska landsliðshópinn átti flottan leik fyrir gestina en hann skoraði sex mörk úr átta skotum.

Það voru heldur betur senur á lokamínútum leiksins en Alingsås voru 31-27 yfir þegar rúmlega ein og hálf mínúta lifðu leiks. En þá tók við ótrúleg endurkoma Kristianstad sem jöfnuðu leikinn í 31-31 og knúðu fram framlengingu sem þeir síðan töpuðu í.

Hægt er að sjá endurkomu Kristianstad hér að neðan. Sjón er sögu ríkari.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top